Laugavegi 32 l 101 Reykjavík l Sími 561 0075 l Fax 561 0074 l sjadu@isl.is

Þjónusta

Hjá Sjáðu viljum við skapa heimilislegt og þægilegt andrúmsloft fyrir þig þannig að þér reynist það auðvelt að tjá óskir þínar og þarfir. Með þessu teljum við að að skilboðin sem við fáum um óskir þínar tryggi í beinu framhaldi bestu faglegu lausnina.

Við leggjum mikinn metnað í að bjóða gæðavöru á góðu verði og erum með lægri verð en almennt finnast í heiminum á sambærilegri vöru.

Verslunin er opin mánudaga til föstudaga frá kl 10:00 til 18:00 og laugardaga frá kl. 11:00 til 16:00. Við bjóðum alla velkomna til að fá hjá okkur ráðgjöf eða einfaldlega bara til að spjalla.

Sjónpróf
Í Sjáðu færð þú sjónmælingu með stuttum fyrirvara sem framkvæmd er af sjónfræðingi með fulla menntun og leyfisbréf frá heilbrigðisráðuneytinu. Full ábyrgð er tekinn á öllum sjónprófum.